AÐALFUNDUR ÞYTS

Aðalfundur Flugmódelfélagsins þyts
Verður haldinn mánudaginn 5. mars 2007 og hefst kl. 20:00 í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur Faxafeni 12, 105 Reykjavík.

Samkvæmt lögum þyts 5.grein um DAGSKRÁ AÐALFUNDAR, hafa þeir félagsmenn sem greitt hafa félagsgjöld fyrir árið 2006 einir kosningarétt og kjörgengi á aðalfundinum.

Þeir flugmódelmenn sem tekið hafa þátt í keppnismótum þyts á árinu 2006 en eru ekki félagsmenn þyts, eru boðnir á aðalfundinn til að taka við verðlaunagripum.

DAGSKRÁ AÐALFUNDR:

1. Skýrsla formanns um störf félagsins á liðnu starfsári.
2. Reikningar lagðir fram til samþykktar.
3. Fjárhagsáætlun og ákvörðun félagsgjalda.
4. Skýrslur nefnda,.
5. Kosning formanns, ritara, gjaldkera og meðstjórnenda samkvæmt ákvæðum 9. greinar í lögum þyts.
6. Kosning endurskoðenda.
7. Kosning í nefndir.
8. Tillögur og lagabreytingar.
9. Önnur mál.

Með aðalfundarboði sem sent hefur verið út í pósti til félagsmanna þyts, fylgja lög þyts í heild frá 3.11 2005. Einnig tillaga til lagabreytinga á lögum þyts í heild og einnig fylgir fundarboði útskýringar í hverju breytingarnar eru fólgnar.

Félagsmenn athugið !
Tillagan til lagabreitinga sem send var út með aðalfundarbði aðalfundar 23. nóvember 2006 sem var ólögmætur, var gölluð og er ógild og verður ekki borin upp á aðalfundinum til samþykktar.

Í lögum þyts 5.grein um Dagská aðalfundar segir :
Reikningaskil og fjárhagsáætlun skulu liggja frammi a.m.k. viku fyrir aðalfund, því mun gjaldkeri þyts láta reikningsskil og fjárhagsáætlun liggja frammi í síðasta lagi frá 26.febrúar 2007 í húsnæði félagsins á Hamranesi þar sem félagsmenn geta nálgast þau.

Stjórn flugmódelfélagsins þyts

This entry was posted in Fréttir. Bookmark the permalink.