Stríðsfugla flugkoma 25. júlí.

Flugkoman að þessu sinni er tileinkuð Skildi Sigurðssyni smíðameistara.

Allar hervélar velkomnar á svæðið, reynum að fá sem flesta herfugla á svæðið og njóta dagsins.

Ekki skiptir máli hvaða árgerðir er um að ræða, fyrri/seinni heimsstyrjöld, Kóreustríðið, kalda stríðið nú eða bara herfuglar dagsins í dag.

Einnig eru módelmenn hvattir til að mæta í búningum/fluggöllum ef þeir búa svo vel að eiga þá.

Sunnudagurinn 26.júlí til vara.
Staðsetning: Tungubökkum.
Umsjón: Einar Páll Einarsson sími 897 7676

This entry was posted in Fréttir. Bookmark the permalink.