Aðalfundur Þyts 2025 Tungubökkum 05.03.2025
1. kl.20:00 – fundur settur
2. Kosning fundarstjóra og ritara aðalfundarins.
Fundarstjóri – Sverrir Gunnlaugsson
Fundarritari – Lúðvík Sigurðsson
3. Skýrsla formanns:
Mikið rigningarsumar.
Haldin voru tvö og hálft mót. – Íslandsmót í hangi, Piper Cub mót og hálft Kríumót.
4. Reikningar samþykktir. Gjaldkeri las upp liði reikninga með útskýringum ,eignir félagsins eru óbreyttar frá fyrra ári.
Nýr hitari var keyptur í klúbbshúsið.
5. Samþykkt var einhljóma að almenn félagsgjöld yrðu hækkuð frá fyrra ári úr kr.16.000- í kr.20.000-
6. Skýrslur nefnda.
Kríumót varð að spilæfingu vegna ónægrar þáttöku.
Íslandsmót í hangi – flognar voru 9 umferðir.
Niðurstaða mótsins varð eftirfarandi: 1.sæti – Sverrir Gunnlaugsson. 2.sæti – Erlingur Erlingsson. 3.sæti – Böðvar Guðmundsson. 4.sæti – Jón V. Pétursson.
Verðlaunapeningar voru afhenntir fyrir þrjú fyrstu sæti. Óskum við þeim til hamingju.
7. Á ekki við á oddaártali.
8. Endurkjör gjaldkera – Bjarni Björnsson, samþykkt einróma.
Í meðstjórnendur voru Guðjón Halldórsson og Frímann Frímannsson samþykktir einróma.
9. Jón V. Pétursson og Guðjón Halldórsson voru endurkjörnir skoðunarmenn reikninga.
10. Kosning í nefndir: Sverrir Gunnlaugsson var endurkjörinn sem mótsstjóri næsta tímabils.
Kaffihlé og kaka með rjóma að hætti hússins.
11. Tillögur að lagabreytingum voru engar.
12. Önnur mál. Umræða um öryggisgirðingu við pitt svæðið og samþykkt að setja það mál í forgang.
Mættir voru á fundinn tíu fullgildir félagar.
Fundi slitið kl. 21:09
Bent er á að daglegar fréttir/mótaskrá og tilkynningar af klúbbastarfi Þyts og annarra flugmódelfélaga er að finna á www.frettavefur.is