Tilkynning frá stjórn þyts.

Til Félagsmanna flugmódelfélagsins þyts.

Á stjórnar fundi þyts haldinn 25. nóvember 2006 var samþykkt eftirfarandi.

Fram að næsta stjórnarfundi þyts sem ákveðið var að halda í janúar 2007, verður reynt til þrautar að fá félagsmenn til að taka að sér stjórnarstörf.

Núverandi stjórn þyts mun hafa eftirlit með eigum þyts á Hamranesi og flugsvæðið verður að sjálfsögðu opið, en að öðru leiti mun stjórnin ekki standa fyrir neinskonar félagsstarfsemi í vetur.

Engir mánaðarlegir félagsfundir verða haldnir í vetur á vegum þyts fyrr en í fyrsta lagi í mars 2007 og þá einungis ef tekst að manna nýja stjórn þyts á framhaldsaðalfundi þyts, sem væntanlega verður haldinn í febrúarmánuði 2007.

Auglýsir stjórn þyts eftir áhugasömum félagsmönnum sem tilbúnir eru að taka að sér stjórnar eða nefndarstörf á vegum félagsins.

Laus stjórnarembætti hjá flugmódelfélaginu þyt eru:

Formaður, ritari, gjaldkeri og meðstjórnandi.

Einnig vantar mannskap í eftirtaldar nefndir félagsins:

Mótanefndir, öryggisnefnd, flugvallarnefnd og húsnefnd.

Einnig hvetjum við félagsmenn að tala sig saman og til dæmis að mynda hóp sem gæti hugsað sér að starfa saman að stjórnarstöfum.

Áhugasamir félagsmenn þyts vinsamlegast sendið tölvupóst til formanns þyts, fyrir næsta stjórnarfund þyts sem haldinn verður í janúar 2007: bodvar@simnet.is

Ef einsýnt þykir að ekki tekst að manna stjórnar og nefndarstörf félagsins, mun stjórn þyts boða til framhalds aðalfundar samkvæmt 16.grein í lögum þyts sem fjallar um félagsslit.

Stjórn flugmódelfélagsins þyts.

This entry was posted in Fréttir. Bookmark the permalink.