Vöfflumót 2009

Nú er komið að hinu árlega Vöfflumóti, það verður haldið laugardaginn 2.maí klukkan 10:00. Nú á að þrífa flugstöðinna okkar hátt og lágt og gera hana skínandi fína fyrir vertíðina í sumar. Spennandi verður að sjá hvaða tækni verður beitt við vöfflubaksturinn í ár.

Ef veður leyfir viljum við hvetja félagsmenn til þess að mæta með gömul flugmódel þ.e.a.s. flugmódel sem hafa verið að safna ryki í gegnum árin og kanski lítið verið flogið upp á síðkastið.

Staðsetning: Hamranesflugvöllur.

This entry was posted in Fréttir. Bookmark the permalink.