Author Archives: Bjarni Valur Einarsson

Aðalfundur 2015

Aðalfundarboð
Kæri félagi,
Aðalfundur Flugmódelfélagsins Þyts verður haldinn fimmtudaginn 19. febrúar 2015 í Skátaheimilinu að Hjallabraut 51, Hafnarfirði og hefst klukkan 20:00.
Aðalfundur Þyts hefur æðsta vald í málefnum félagsins og eru félagsmenn hvattir til að fjölmenna á fundinn og taka þannig virkan þátt í mótun félagsins.
Við viljum líka hvetja áhugasama um setu í stjórn eða nefndum til að senda póst á stjorn@thytur.is og gefa kost á sér skv.7., 8., 9., og 10. lið dagskrár aðalfundarins.

DAGSKRÁ AÐALFUNDAR

1. Formaður setur aðalfund Þyts.
2. Kosning fundarstjóra og ritara aðalfundarins.
3. Skýrsla formanns um störf félagsins á liðnu starfsári.
4. Reikningar lagðir fram til samþykktar.
5. Fjárhagsáætlun og ákvörðun félagsgjalda.
6. Skýrslur nefnda.
7. Kosning gjaldkera skv. 8.gr.
8. Kosning tveggja meðstjórnenda skv. 8.gr.
9. Kosning endurskoðenda.
10. Kosning í nefndir
11. Tillögur um lagabreytingar.
12. Önnur mál.

Rétt er að benda á að aðeins skuldlausir-og ævifélagar eru atkvæðisbærir á aðalfundi. Vilji menn verða atkvæðisbærir á aðalfundi er mögulegt að greiða félagsgjöldin fyrir aðalfund, hjá gjaldkera, eða inn á bankareikning Þyts: 0115-26-003831, kt. 670990-1419. (senda kvittun á gjaldkeri@thytur.is).
Stjórnin

Eftirfarandi tillögur að lagabreytingum liggja fyrir og verða lagðar fyrir fundinn;

Grein 5 hljóðar:
DAGSKRÁ AÐALFUNDAR
5.1 Formaður setur aðalfund Þyts.
5.2 Kosning fundarstjóra og ritara aðalfundarins.
5.3 Skýrsla formanns um störf félagsins á liðnu starfsári.
5.4 Reikningar lagðir fram til samþykktar.
5.5 Fjárhagsáætlun og ákvörðun félagsgjalda.
5.6 Skýrslur nefnda.
5.7 Kosning formanns samkvæmt ákvæðum 8.gr.
5.8 Kosning ritara, gjaldkera og meðstjórnenda samkvæmt ákvæðum 8.gr.
5.9 Kosning endurskoðenda.
5.10 Kosning í nefndir.
5.11 Tillögur um lagabreytingar.
5.12 Önnur mál.
Kosningarétt og kjörgengi á aðalfundi hafa allir skuldlausir félagar. Atkvæði eru óframseljanleg.
Kosningar skulu vera skriflegar nema fundurinn samþykki annað.

Grein 5 eftir breytingu hljóðar þá:
DAGSKRÁ AÐALFUNDAR
5.1 Formaður setur aðalfund Þyts.
5.2 Kosning fundarstjóra og ritara aðalfundarins.
5.3 Skýrsla formanns um störf félagsins á liðnu starfsári.
5.4 Reikningar lagðir fram til samþykktar.
5.5 Fjárhagsáætlun og ákvörðun félagsgjalda.
5.6 Skýrslur nefnda.
5.7 Kosning formanns samkvæmt ákvæðum 8.gr.
5.8 Kosning ritara, gjaldkera og meðstjórnenda samkvæmt ákvæðum 8.gr.
5.9 Kosning endurskoðenda.
5.10 Kosning í nefndir.
5.11 Tillögur um lagabreytingar.
5.12 Önnur mál.
Kosningarétt og kjörgengi ásamt rétti til fundarsetu á aðalfundi hafa allir skuldlausir félagar. Atkvæði eru óframseljanleg.
Kosningar skulu vera skriflegar nema fundurinn samþykki annað.
Þeir sem öðlast vilja rétt til fundarsetu verða að hafa greitt félagsgjöld a.m.k. viku fyrir aðalfund.